1
/
af
4
Prjónagleði
Tóvinna og spuni á rokk - Jóhanna Erla Pálmadóttir
Tóvinna og spuni á rokk - Jóhanna Erla Pálmadóttir
Venjulegt verð
23.500 ISK
Venjulegt verð
Söluverð
23.500 ISK
Einingarverð
/
á hverja
Skattar innifaldir
Föstudaginn 5. júní 2026
Kl: 13 - 17
Staðsetning: Kvennaskólinn, Árbraut 31
Námskeiðslýsing:
Á námskeiðinu verður kennt að vinna ull frá grunni í band, með því að spinna, tvinna og ganga frá hespu.
Farið verður yfir eiginleika ullarinnar, sem og lauslega yfir sögu spuna á Íslandi og þær breytingar sem hafa átt sér stað í vinnubrögðum frá landnámi.
Nemendur læra að:
Velja bestu ullina í reyfinu
Taka ofan af (skila tog frá þeli)
Spinna og tvinna á rokk
Ganga frá bandi eftir spuna
Í lok námskeiðs eru nemendur með færni til að velja ull til vinnslu, vinna hana og spinna band með þeim grófleika sem hentar.
Taka með:
Allt efni innifalið. En takið með ykkur hressingu því námskeiðið er 4 tímar og tekin verður stutt kaffipása þegar hentar hverjum og einum.
Tungumál: Íslenska
Kennari: Jóhanna Erla Pálmadóttir
Jóhanna er útlærður textílkennari frá Håndarbejds Fremme í Kaupmannahöfn og hefur kennt tóvinnu síðan 1991 við Landbúnaðarháskóla Íslands ásamt prjóni og útsaumi. Hún starfaði við Textílmiðstöð Íslands um árabil og kennir þar tóvinnu, einnig hefur Jóhanna
kennt á ýmsum textílnámskeiðum hérlendis sem og erlendis.
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Deila
