Fara í vöruupplýsingar
1 af 2

Prjónagleði

Sitt lítið af hverju í prjónaskap - Anna Margret Valgeirsdóttir

Sitt lítið af hverju í prjónaskap - Anna Margret Valgeirsdóttir

Venjulegt verð 14.900 ISK
Venjulegt verð Söluverð 14.900 ISK
Sala Uppbókað
Skattar innifaldir

Laugardaginn 6. júní 2026

kl: 13.30 - 16.30

Staðsetning: Húnaskóli

Námskeiðslýsing: 

Á þessu námskeiði verður farið í ýmsar aðferir við að létta okkur frágang og gera prjónlesið fallegra.

Kenndar verða nokkrar aðferðir við uppfir, t.d. hvernig hægt er að prjóna í báðar áttir, einfaldar og skemmtilegar leiðir til að gera fallega kanta, falleg hnappagöt og affellingar. Kenndar verða styttar umferðir og farið yfir hvernig sú aðferð getur hjápað við eitt og annað, t.d. að gera hálsmál rúnaðra að framan eða prjóna rendur sem eru þríhyrninglaaga.

Taka með: 

Þátttakendur þurfa að taka með sér fremur gróft garn og að minnsta kosti 3-4 liti, mega vera afgangar, og prjóna sem henta fyrir garnið. Fínt garn hentar illa. Það er ágætt að vera með prjónasnúru en alls ekki nauðsynlegt.

Nauðsynleg kunnátta:

Að kunna að prjóna

Tungumál: Íslenska

Kennari: Anna Margret Valgeirsdóttir

Anna Margret hefur starfað sem kennari í 30 ár og mestan hluta þess tíma sem textílmenntakennari. Hún hefur verið áhugasamur prjónari frá 5 ára aldri. Anna Margret býr á Blönduósi og hefur kennt á Prjónagleðinni frá upphafi.

 

Sjá nánari upplýsingar