Fara í vöruupplýsingar
1 af 2

Prjónagleði

Sashiko viðgerð á textíl - Sandra Karlsdóttir

Sashiko viðgerð á textíl - Sandra Karlsdóttir

Venjulegt verð 15.000 ISK
Venjulegt verð Söluverð 15.000 ISK
Sala Uppbókað
Skattar innifaldir

Laugardaginn 6. júní 2026

Kl: 9 - 12

Staðsetning: Húnaskóli

Námskeiðslýsing:

Á þessu námskeiði er unnið með Sashiko aðferð í sýnilegri viðgerð, á ensku kallað visible mending. Þessi aðferð hentar vel í viðgerð á efni sem er ofið eins og hör, gallaefni, bómull og fleira.

Þú getur komið með flík sem þú vilt nýta námskeiðið í til að gera við, eða þú getur nýtt námskeiðið til að gera við prufubúta ef þú vilt æfa þig áður en þú stekkur í fataviðgerð. 

Það er mikil fegurð í því að gefa sér tíma til að nostra við að hlúa að flík til að lengja líftíma hennar, bæði til að skapa fleiri minningar í henni og einnig til að sporna við textílsóun. 

Allt efni á staðnum nema það sem gera á við.

Taka með: 

Flík til viðgerðar ef þú vilt nýta tímann til að byrja á viðgerð eða prufubúta af ofnu efni.

Nauðsynleg kunnátta:

Engin

Tungumál: Íslenska

Kennari: Sandra Karlsdóttir

Sandra er tómstundafræðingur og ljósmyndari sem hefur undanfarin ár valið að hægja á — að sauma eða prjóna sjálf og viðhalda frekar en að kaupa nýtt. Þessi breyting á neyslu hefur haft í för mer sér aukna virðingu fyrir efni, tíma og sögunum sem búa í hverri flík. Söndru er hægt að finna á instagram undir nafninu @sondrugardur

Sjá nánari upplýsingar