Prjónagleði
Sætaferð Reykjavík-Blönduós-Reykjavík á Prjónagleðina 6.júní 2026
Sætaferð Reykjavík-Blönduós-Reykjavík á Prjónagleðina 6.júní 2026
Laugardagur 6. júní 2026
Sætaferð frá Reykjavík á Prjónagleðina á Blönduósi
Innifalið í verðinu er rútuferð Reykjavík-Blönduós-Reykjavík og aðgangur að fyrirlestrum sem haldnir verða í Félagsheimilinu kl: 12.30 - 15.30 þann sama dag.
Dagskrá:
Kl: 8.00 - Brottför frá Sambíóinu í Álfabakka
Kl: 12.00 - Áætluð koma á Blönduós
Kl: 12 – 18 - Njóta lífsins á Prjónagleðinni og Garntorginu.
Kl: 18.15 - Brottför frá Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi
Kl: 23.00 - Áætluð koma í Mjóddina í Reykjavík.
Prjónagleðin verður haldin í 10. sinn í júní og það verður mikið um að vera eins og endranær. Garntorg með yfir 30 söluaðilum, textílsýningar, áhugaverðir fyrirlestrar, viðburðir og litríkt mannlíf.
Athugið að kaupa þarf námskeið sérstaklega ef áhugi er fyrir því að fara á námskeið eftir hádegið á laugardag.
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Deila
