1
/
af
3
Prjónagleði
Rýja - Finnsk handverkshefð - Guðrún Hannele
Rýja - Finnsk handverkshefð - Guðrún Hannele
Venjulegt verð
20.000 ISK
Venjulegt verð
Söluverð
20.000 ISK
Einingarverð
/
á hverja
Skattar innifaldir
Laugardaginn 6. júní 2026
kl: 13.30 - 16.30
Staðsetning: Húnaskóli
Námskeiðslýsing:
Rýja er aldagömul finnsk hefð sem er bæði hægt að vefa í vefstól eða sauma í grunn. Útkoman er svipuð; flötur þakinn kögri eða stuttum garnspottum. Rýjamottur á gólf eða vegg eru hefðbundnar og til í alls konar mynstrum.
Á þessu örnámskeiði lærið þið grunntæknina við að rýja. Við gerum lítið verk sem getur orðið að veggskreytingu.
Innifalið í námskeiðsgjaldinu er allt efni og áhöld í rýjaverkið; sérstakt rýjagarn frá Finnlandi, strammi, rýja-stika og nál, leiðbeiningar og mynsturteikning.
Taka með:
Skæri og blýant og/eða fínan tússpenna
Nauðsynleg kunnátta:
Námskeiðið er fyrir alla sem vilja læra nýja aðferð í skapandi textíl
Tungumál: Íslenska, enska, finnska, skandinavíska
Kennari: Guðrún Hannele Henttinen
Guðrún Hannele er textílkennari og hefur kennt prjón, útsaum og aðrar hannyrðir um árabil. Hún er einnig vettlingabókahöfundur og gerir reglulega nýjar uppskriftir af ýmsu tagi.
Undanfarin ár hefur hún rekið Storkinn og kennt þar á námskeiðum. Hún er menntuð í textílkennslu á Íslandi og Finnlandi, enda á hún líka rætur að rekja þangað.
Hannyrðir og skapandi greinar í textíl af öllu tagi eru áhugamál hennar, en prjón og útsaumur eru í mestu uppáhaldi.
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Deila
