Fara í vöruupplýsingar
1 af 2

Prjónagleði

Lykkjubinding - Ný aðferð til að festa bakbönd í tvíbanda prjóni - Guðrún Hannele

Lykkjubinding - Ný aðferð til að festa bakbönd í tvíbanda prjóni - Guðrún Hannele

Venjulegt verð 15.000 ISK
Venjulegt verð Söluverð 15.000 ISK
Sala Uppbókað
Skattar innifaldir

Sunnudagur 7. júní 2026

kl: 9 - 12

Staðsetning: Húnaskóli

Námskeiðslýsing: 

Lykkjubinding er nýlegt íslenskt heiti á aðferð sem er kölluð Ladderback Jaquard á ensku.
Þessi aðferð nýtist vel í tvíbandaprjóni, sérstaklega þegar að langt er á milli mynstureininga. Þá þarf ekki að víxla böndum, sem minnkar áhættuna á að mynsturliturinn sjáist í gegn. Um leið og þið eruð búin að læra þessa aðferð þá verður stórgert mynstur ekki lengur fyrirstaða.
Byrjað verður á húfu sem er prjónuð í hring.

Taka með: 

Kennari verður með garnpakka til sölu á námskeiðinu og prjóna ef þarf.
Ef þið viljið koma með eigið garn þá er grófleikinn léttband (DK) heppilegur eða prjónfesta 23-24 L / 10 cm í sléttprjóni, í tveimur litum sem eru ólíkir í styrkleika.
Takið með 40 cm hringprjón í stærðum 3,5 mm og 4 mm (eða kaupið á staðnum).

Nauðsynleg kunnátta:

Námskeiðið er fyrir þau sem hafa reynslu af tvíbandaprjóni en vilja bæta við sig nýrri tækni.

Tungumál: Íslenska, enska, finnska, skandinavíska.

Kennari: Guðrún Hannele Henttinen

Guðrún Hannele er textílkennari og hefur kennt prjón, útsaum og aðrar hannyrðir um árabil. Hún er einnig vettlingabókahöfundur og gerir reglulega nýjar uppskriftir af ýmsu tagi.
Undanfarin ár hefur hún rekið Storkinn og kennt þar á námskeiðum. Hún er menntuð í textílkennslu á Íslandi og Finnlandi, enda á hún líka rætur að rekja þangað.  
Hannyrðir og skapandi greinar í textíl af öllu tagi eru áhugamál hennar, en prjón og útsaumur eru  í mestu uppáhaldi.
Sjá nánari upplýsingar