Prjónagleði
Hekluð verkefnataska - Hera Sigurðardóttir
Hekluð verkefnataska - Hera Sigurðardóttir
Laugardaginn 6. júní 2026
Kl: 9 - 12
Staðsetning: Húnaskóli
Námskeiðslýsing:
Verið hjartanlega velkomin á námskeið þar sem við lærum að hekla tösku. Taskan er fullkomin verkefnataska fyrir smærri handavinnuverkefni á ferðinni. Öll velkomin, bæði þau sem kunna að hekla og þau sem eru byrjendur.
Samverustundin hefst á léttum inngangi um töfra handavinnunnar og svo er hafist handa. Innifalið er efni í eina tösku og útprentuð uppskrift. Allt efni verður á staðnum.
Sköpun eykur vellíðan, að sjá verk verða til í þínum eigin höndum er valdeflandi og ánægjulegt. Að leggja af stað með hugmynd og ásetning en leyfa flæði hugans, hjartans og handanna að skapa verkið og treysta því að útkoman verði sú sem hún á að vera. Þetta er frelsandi gjörningur innan ramma upphafs og endis og útkoman er þín.
Taka með:
8mm heklunál
Nauðsynleg kunnátta:
Engin (kostur að kunna að hekla en ekki nauðsyn)
Tungumál: Íslenska
Kennari: Hera Sigurðardóttir
Hera Sigurðardóttir er með menntun í mannfræði og hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands. Hún hefur víðtæka reynslu af starfi með börnum, ungmennum og fullorðnum en frá 2002-2015 starfaði hún hjá Reykjavíkurborg sem frístundaráðgjafi og verkefnastjóri á leikjanámskeiðum, í félagsmiðstöðvum, ungmennahúsum og við starfsmannaþjálfun. Auk þess að hafa verið stundakennari í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands. Hera hefur mikla reynslu af því að valdefla og leiðbeina hópum og einstaklingum og ná fram sköpunarkraftinum og leikgleðinni.
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Deila
