Prjónagleði
Fiskikossahæll (e. Fish Lips Kiss Heel) - Magnea Arnardóttir
Fiskikossahæll (e. Fish Lips Kiss Heel) - Magnea Arnardóttir
Sunnudagur 7. júní 2026
kl: 9 - 12
Staðsetning: Húnaskóli
Námskeiðslýsing:
Á námskeiðinu verður prjónaður fiskikossahæll, einnig verður kennd uppfit fyrir þá sem vilja prjóna sokka frá tá og farið yfir ýmislegt nytsamlegt þegar kemur að sokkaprjóni.
Fiskikossahæll passar á allar stærðir sokka, allar prjónfestur og hvort sem sokkurinn er prjónaður frá stroffi eða tá.
Innifalið í námskeiðinu er Prjóneu sokkauppskrift með íslenskri þýðingu á þessum góða hæl.
Taka með:
Sokkagarn, sokkaprjóna í viðeigandi stærð og 2 prjónamerki. Ekki væri verra að vera búin að prjóna sokk að hæl fyrir námskeiðið, en það er ekki nauðsynlegt.
Nauðsynleg kunnátta:
Þátttakendur þurfa að kunna að prjóna slétt prjón fram og til baka og í hring.
Tungumál: Íslenska og enska
Kennari: Magnea Arnardóttir, stundum kölluð Prjóena.
Magnea er kennari og þroskaþjálfi sem hefur prjónað mikið síðustu fimmtán árin. Hún hefur í tæplega áratug verið með instagrammið Prjónea og deilt þar ýmsu sem viðkemur handavinnu og garni. Magnea er mikil sokkaprjónakona og á sokkaprjón hug hennar allann. Hún hefur á síðustu árum kennt á sokkanámskeiðum við ýmis tilefni.
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Deila
