Fara í vöruupplýsingar
1 af 4

Prjónagleði

Eftirá ísettur hæll (e. Afterthought heel) - Magena Arnardóttir

Eftirá ísettur hæll (e. Afterthought heel) - Magena Arnardóttir

Venjulegt verð 13.900 ISK
Venjulegt verð Söluverð 13.900 ISK
Sala Uppbókað
Skattar innifaldir

Laugardaginn 6. júní 2026

kl: 13.30 - 16.30

Staðsetning: Húnaskóli

Námskeiðslýsing: 

Á námskeiðinu veður kennt að prjóna hæl í sokk eða sokkasnák, eftirá, án þess að setja aukaband eða aðra merkingu fyrir hæl, á meðan sokkurinn er prjónaður. Einnig verður farið yfir hvernig sokkar eru útbúnir úr sokkasnák.

Sokkasnákur er langur pjónaður hólkur í þeirri vídd sem passar sem sokkur, t.d. 60/64 lykkur á prjóna númer 2 mm eða 2,25 mm.

Taka með: 

Prjónaðan sokkasnák, sokkagarn, sokkaprjóna í viðeignadi stærð, prjónamerki, skæri og nál. Sokkasnákar fást tilbúnir t.d. hjá Vatnsnes Yarn.

Nauðsynleg kunnátta:

Þátttakendur þurfa að kunna að prjóna slétt prjón í hring.

Tungumál: Íslenska og enska 

Kennari: Magnea Arnardóttir, stundum kölluð Prjóena.

Magnea er kennari og þroskaþjálfi sem hefur prjónað mikið síðustu fimmtán árin. Hún hefur í tæplega áratug verið með instagrammið Prjónea og deilt þar ýmsu sem viðkemur handavinnu og garni.  Magnea er mikil sokkaprjónakona og á sokkaprjón hug hennar allann. Hún hefur á síðustu árum kennt á sokkanámskeiðum við ýmis tilefni. 

Sjá nánari upplýsingar