Prjónagleði
Búðu til garn úr flík og gerðu þína eigin buddu - Hildigunnur og Hrafnhildur
Búðu til garn úr flík og gerðu þína eigin buddu - Hildigunnur og Hrafnhildur
Laugardaginn 6. júní 2026
kl: 9 - 12
Staðsetning: Félagsheimilið
Námskeiðslýsing:
Fyrir hverja er námskeiðið?
Námskeiðið hentar öllum, hvort sem þú ert algjör byrjandi í handavinnu eða vilt læra nýjar leiðir til að endurnýta textíl. Við hvetjum þátttakendur til að koma með gamla flík (t.d. bómullarboli, kjóla ) til að vinna úr. Fyrir þá sem eiga ekki efni eða vilja bæta við sig, verður boðið upp á tilbúið efnaband og afgangsefni á staðnum sem hægt er að kaupa.
Af hverju að taka þátt?
Þú lærir að minnka textílsóun með skapandi hætti. Skapaðu með okkur einstaka buddu, engar tvær buddur verða eins litir og áferð ráðast af þínu efnisvali. Það er fátt eins gefandi og að eiga hlut sem maður hefur búið til frá grunni, allt frá garninu sjálfu að lokaútkomunni.
Taka með:
Til þess að námskeiðið gangi sem best fyrir sig er gott að hafa eftirfarandi meðferðis:
Best er að koma með 1–2 flíkur sem má klippa niður.
Góð efnisskæri, það skiptir öllu máli að skærin séu beitt svo auðvelt sé að klippa langar lengjur án þess að þreyta höndina.
Málband eða reglustiku, til að tryggja að efnisborðarnir verði jafnbreiðir.
Nál og tvinna, gott að hafa til að sauma saman enda eða festa lokun á budduna (þó einnig verði farið yfir hvernig megi binda eða vefa saman).
Skriffæri og blokk, ef þú vilt skrifa niður tæknina eða teikna upp hugmyndir.
Hvað verður á staðnum? Ef þú gleymir einhverju eða vilt bæta við þig, þá verður eftirfarandi í boði: Auka efni og tilbúið efnaband: Hægt að kaupa á vægu verði.
Vefnaðaráhöld: Við útvegum ramma eða tæki sem þarf til að setja upp vefnaðinn. Einnig verða eitthvað af skærum, skurðarbrettum og nálum á staðnum.
Nauðsynleg kunnátta:
Engin
Tungumál: Íslenska
Kennarar: Hildigunnur og Hrafnhildur Textíl barinn
Hildigunnur og Hrafnhildur hafa ólíkan bakgrunn en hafa báðar fengist við verkefnastjórn ýmissa verkefna, námskeiðahald, hönnun og list. Sameiginleg ástríða þeirra er endurnýting á textíl og listsköpun á því sviði. Teymið býr að mikilli reynslu og sérþekkingu til að standa að frumkvöðulsstarfi og uppbyggingu Textíl Barsins. Á Textíl Barnum er stanslaust textíl stuð!
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Deila
