Prjónagleði
Brioche hekl - Sigurlaug Hauksdóttir með leyfi frá Lillabjörncrochet.
Brioche hekl - Sigurlaug Hauksdóttir með leyfi frá Lillabjörncrochet.
Sunnudaginn 7. júní 2026
Kl: 9 - 12
Staðsetning: Húnaskóli
Námskeiðslýsing:
Kynning á „Brioche“ hekli með námsefni frá Lillabjörncrochet/Tatsiönu. Sjá nánar um Tatsiönu á heimasíðu hennar: www.lillabjorncrochet.com.
Heklaður verður prufuferningur sem er grunnurinn að „Brioche“ hekli.
Garn er innifalið í námskeiðsgjaldinu, það eina sem þátttakendur þurfa að taka með sér er 3,5mm heklunál.
Taka með:
Heklunál í stærð 3,5.
Nauðsynleg kunnátta:
Þátttakendur þurfa að kunna grunnatriði í hekli.
Tungumál: Íslenska
Kennari: Sigurlaug Hauksdóttir
Sillu hefur frá barnsaldri liðið best þegar hún hefur haft eitthvað á milli handanna, hvort sem það er bók eða hvers kyns handavinna, þá helst prjón. Henni finnast hljóðbækur og hlaðvörp besta uppfinning seinni ára, þá getur hún bæði „lesið“ og stundað handavinnu samtímis.
Silla hefur líka klippt í prjónles næstum jafnlengi og hún hefur prjónað, enda var hún svo heppin að eiga mömmu sem neitaði að gera hlutina fyrir hana vegna þess að hún gæti það sko alveg sjálf. Tvíbandaprjón og prjón sem gerir kröfur um nákvæmni og óvenjulegar eða nýjar lausnir er það sem helst vekur áhuga hennar.
Hún hefur áður haldið vel sótt námskeið á Prjónagleðinni um frágang á peysum með mjög jákvæðum ummælum. Þá hefur hún einnig gefið út eigin prjónauppskriftir.
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Deila
