Fara í vöruupplýsingar
1 af 2

Prjónagleði

Afgangaprjón - Nanna Einarsdóttir

Afgangaprjón - Nanna Einarsdóttir

Venjulegt verð 15.000 ISK
Venjulegt verð Söluverð 15.000 ISK
Sala Uppbókað
Skattar innifaldir

Laugardaginn 6. júní 2026

Kl: 9 - 12

Staðsetning: Húnaskóli

Námskeiðslýsing: 

Afgangsgarn er óhjákvæmilegur fylgifiskur þess að prjóna og því meira sem prjónað er, því meiri afgangar safnast saman. Það getur reynst áskorun að finna hefðbundnar uppskriftir sem passa fyrir afgangana í réttu magni, lit og grófleika.

Nálgunin sem kennd er á þessu námskeiði felst í að taka þennan fjölbreytileika garnsins og snúa honum upp í tækifæri til sköpunar. Farið verður yfir nokkrar gagnlegar aðferðir sem gagnast við afgangaprjón og hvernig er hægt að leika sér með liti til að skapa einstakar flíkur. 

Að loknu námskeiði munu prjónarar geta nýtt alla afganga sína í hvers konar flík sem er, jafnvel niður í smæstu afganga.

Taka með: 

Afgangsgarn til að gera tilraunaprjónfestuprufur og prjóna. Gott er að hafa með nokkrar stærðir af prjónum til að vera frjálsari með garnval í prufuna, t.d. 4.5 mm, 6 mm og 8 mm

Nauðsynleg kunnátta:

Grunnfærni í prjóni; geta fitjað upp og fellt af, prjónað slétt og brugðið.

Tungumál: Íslenska

Kennari: Nanna Einarsdóttir

Nanna Einarsdóttir er stofnandi Knittable og þekkir því uppbyggingu og útreikninga prjónaflíka út og inn. Hún hefur hannað og gefið út nokkrar prjónauppskriftir og hefur sérstaka ánægju af skapandi prjóni, hvort sem það felst í litamynstri, tilraunum með snið eða að galdra fram einstaka flík úr alls konar afgangsgarni.

 

Sjá nánari upplýsingar