Prjónagleði
Tvöfalt prjón fyrir byrjendur og lengra komna - Thelma Steimann
Tvöfalt prjón fyrir byrjendur og lengra komna - Thelma Steimann
Sunnudaginn 7. júní 2026
Kl: 8 - 11
Staðsetning: Húnaskóli
Námskeiðslýsing fyrir byrjendur í tvöföldu prjóni:
Lærðu allt sem þú þarft að vita um tvöfalt prjón: uppfit, affellingu, úrtökur og
útaukningar, hvernig mynstur eru lesin og bestu leiðir til að lagfæra villur.
Farið verður yfir helstu aðferðir sem nýtast til að prjóna bæði Thelma scarf og shawl.
Fitjað verður upp fyrir litla tusku og prjónað fram og tilbaka með mismunandi
mynstrum.
Þátttakendur fá uppskrift með sér heim.
Taka með:
Prjóna ca. 4 mm (sokkaprjóna eða hringprjóna) og 2 mismunandi liti af bómullargarni sem
passar við prjónastærð.
Nauðsynleg kunnátta:
Að prjóna með 2 litum.
Námskeiðslýsing fyrir lengra komna:
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa þegar lokið grunnnámskeiði hjá Thelma Steimann
og vilja dýpka þekkingu sína í tvöföldu prjóni.
Farið verður yfir:
– Uppfit með tvílitu stroffi með ítölsku aðferðinni
– Útaukningar til hægri og vinstri
– Úrtöku til hægri og vinstri (nytsamlegt m.a. fyrir Thelma Hoodie og vettlinga)
– Hvernig lykkjur eru sóttar á hlið þannig að prjónfestan haldist jöfn og falleg á báðum hliðum
Fitjað verður upp fyrir litla prufu og prjónað í hring.
Taka með:
Prjóna ca. 4 mm (sokkaprjóna eða hringprjóna ef prjónað er með magic loop) og 2 mismunandi liti af bómullargarni sem passar við prjónastærð.
Nauðsynleg kunnátta:
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa þegarlokið grunnnámskeiði hjá Thelma Steimann
og vilja dýpka þekkingu sína í tvöföldu prjóni.
Tungumál: Íslenska, enska, danska
Kennari: Thelma Steimann
Thelma Steimann er prjónahönnuður og garnlitari með aðsetur í Kaupmannahöfn.
Hún vinnur með náttúruleg efni og leggur áherslu á vandað handverk, skýrar aðferðir
og skapandi prjón sem styrkir sjálfstraust og gleði í ferlinu.
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Deila
