Skilmálar Prjónagleðinnar

Skilmálar vefverslunar Prjónagleðinnar

1. Almennt
Vefverslun Prjónagleðinnar er rekin af Húnabyggð (kt. 620269-2269), Ægisbraut 1, 540 Blönduós. Húnabyggð annast skipulag og framkvæmd hátíðarinnar sem opin bæjarhátíð án hagnaðarsjónarmiða. Hátíðin er hluti af menningar-, samfélags- og fræðsluhlutverki sveitarfélagsins samkvæmt sveitarstjórnarlögum.

2. Vöruframboð
Í vefversluninni er boðið upp á skráningu á námskeiðu, viðburði og handverkstengdum vörum. Vöruframboð getur verið tímabundið og breytilegt.

3. Verð og greiðslur
Öll verð eru í ISK og innihalda virðisaukaskatt þar sem það á við. Greiðslur fara í gegnum greiðslugátt Straums greiðslumiðlunar hf. Viðskiptaskilmálar Straums gilda og má finna þá á:
https://www.straumur.is/stefnur-og-skilmalar

4. Afhending vöru

  • Námskeið: Skráning og staðfest kaup með tölvupósti.

  • Viðburðir: Skráning og staðfest kaup með tölvupósti.

  • Vörur: Afhent á hátíðarsvæði eða sendar ef það á við. Sendingarkostnaður reiknast við pöntun.

5. Skil og endurgreiðslur
a) Námskeið og viðburðir:
Viðskiptavinur getur hætt við kaup innan 14 daga frá kaupum, ef viðburðurinn hefur ekki hafist. Ef þjónustan hefst innan 14 daga og viðskiptavinur samþykkir það við skráningu, fellur endurgreiðslurétturinn niður.

b) Vörur:
Vörum má skila innan 14 daga frá móttöku, ef þær eru ónotaðar og í upprunalegum umbúðum. Gallaðar vörur eru endurgreiddar að fullu.

c) Endurgreiðslur:
Endurgreiðslur eru unnar í gegnum greiðslugátt Straums og geta tekið allt að 7–10 virka daga.

6. Persónuvernd
Húnabyggð meðhöndlar allar upplýsingar í samræmi við lög um persónuvernd. Greiðsluupplýsingar eru meðhöndlaðar af Straumi og eru ekki geymdar hjá Húnabyggð.

7. Ábyrgð
Ef vara er gölluð eða rangt afgreidd, vinsamlegast hafðu samband innan 5 virkra daga.