Upphitun fyrir Prjónagleði hafin – prjónað í heimahúsum hér og þar á Blönduósi 🧶

Upphitun fyrir Prjónagleði hafin – prjónað í heimahúsum hér og þar á Blönduósi 🧶

Upphitun fyrir Prjónagleðina 2025 er farin af stað og Blönduósingar bjóða gestum í notalegt opið hús þar sem prjónar eru dregnir fram, kaffi á könnunni og stemningin hlý og létt. Veðrið leikur við okkur og það er einstaklega ánægjulegt að sjá hversu margir leggja sig fram við að skapa notalega prjónastund á heimilum sínum.

F.h. Prjónagleðinnar færum við eftirfarandi gestgjöfum innilegar þakkir fyrir að opna heimilin sín og bjóða prjónasamfélaginu inn:

🧶 Gallerí Ós – gestgjafar: Henný Rósa og Dóra í Listakoti Dóru
🧶 Apótekarastofan – gestgjafi: Þrúða
🧶 Heiðarbraut 7 – gestgjafi: Þórdís Erla Björnsdóttir
🧶 Hólabraut 15 – gestgjafar: mæðgurnar Berglind og Magga
🧶 Brekkubyggð 16 – gestgjafi: Anna Margrét Valgeirsdóttir

Það er dýrmætt að finna hvað hlýja, samvera og sköpun ræður ríkjum – og þetta er aðeins byrjunin á prjónagleðinni sem fram undan er. Takk fyrir okkur 💛

Aftur í fréttir