
Einn frægasti íslenski áhrifavaldurinn á Prjónagleði 2025!
Deila
Það hafa allir beðið spenntir eftir upplýsingum um námskeið og dagskrá Prónagleðinnar í ár. Það er því ekki seinna vænna að veita ykkur smá innsýn inn í það sem við erum búin að vera að vinna að hörðum höndum svona rétt á meðan við klárum að hamra inn námskeiðin og fínpússa dagskrána 😊
Með stolti og enn meiri tilhlökkun þá deilum við því með ykkur að gleðisprengjan og ofurmeistarinn TINNA ÞÓRUDÓTTIR ÞORVALDAR ætlar að kenna hjá okkur hvorki meira né minna en þrjú námskeið á föstudegi og laugardegi.
Auk þess verður Tinna í einu af aðalhlutverkunum í viðburða- og fyrirlestradagskránni okkar.
Við kynnum tímasetningu fyrir opnun námskeiða svo fljótt sem við erum örugg um að allt sé rétt og virki sem skildi (hátíðinni hefur mjög fiskur um hrygg og við erum að setja hana upp í fyrsta skipti á þessum stærri vefumhverfi)
Endilega fylgið okkur á samfélagsmiðlum okkar og skráið ykkur á póstlistann okkar. Við sendum tilkynningu þar um leið og allt er klárt.
Svo mælum við auðvitað með því að ALLIR horfi á viðtalið við Tinnu sem var í þættinum Ísland í dag í gærkvöldi, jafnvel oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Það gjörsamlega geislar af þessari stórkostlegu konu og gleðin, jákvæðnin og einlægnin er áþreifanleg.
Viðtalið má finna hér.