Skip to product information
1 of 3

Prjónagleði

Tvöfalt prjón, grunnnámskeið - Thelma Seimann

Tvöfalt prjón, grunnnámskeið - Thelma Seimann

Regular price 16.000 ISK
Regular price Sale price 16.000 ISK
Sale Sold out
Taxes included.

Laugardaginn 6. júní 2026

Kl: 8 - 11

Staðsetning: Húnaskóli

Námskeiðslýsing: 

Lærðu allt sem þú þarft að vita um tvöfalt prjón: uppfit, affellingu, úrtökur og
útaukningar, hvernig mynstur eru lesin og bestu leiðir til að lagfæra villur.

Farið verður yfir helstu aðferðir sem nýtast til að prjóna bæði Thelma scarf og shawl.
Fitjað verður upp fyrir litla tusku og prjónað fram og tilbaka með mismunandi
mynstrum. 

Þátttakendur fá uppskrift með sér heim.

Taka með: 

Prjóna ca. 4 mm (sokkaprjóna eða hringprjóna) og 2 mismunandi liti af bómullargarni sem
passar við prjónastærð.

Nauðsynleg kunnátta:

Að prjóna með 2 litum.

Tungumál: Íslenska, enska, danska

Kennari:  Thelma Steimann

Thelma Steimann er prjónahönnuður og garnlitari með aðsetur í Kaupmannahöfn.
Hún vinnur með náttúruleg efni og leggur áherslu á vandað handverk, skýrar aðferðir
og skapandi prjón sem styrkir sjálfstraust og gleði í ferlinu.

View full details