Veitingastaðir og kaffihús
Í Húnabyggð er að finna fjölbreytt úrval veitingastaða þar sem hægt er njóta og nærast í notalegu umhverfi. Á Blönduósi eru bæði hefðbundnir matsölustaðir og staðir sem bjóða upp á heimilislega og staðbundna matargerð með áherslu á hráefni úr héraði.

Kaffihús í sögulegu húsi sem var einu sinni skólastjórabústaður og stendur inni á eiginlegri skólalóð Húnaskóla, í hjarta bæjarins. Ömmukaffi er ekki aðeins notalegt kaffihús heldur einnig blómabúð.

B&S er vinsæll staður sem býður upp á fjölbreytt úrval af skyndibita, súpum, fiskréttum og drykkjum í þægilegu umhverfi og er staðsettur við þjóðveginn norðan megin við Blöndu. Á veitingastaðnum er gott barnahorn sem nýtist fjölskyldufólki vel þegar stoppað er.

Einstök upplifun þar sem gestir njóta kvöldverðar í heimilislegu rými með áherslu á hefðir og ferskt íslenskt hráefni. Nauðsynlegt er að panta fyrirfram.

Veitingastaður á Hótel Blönduósi sem býður upp á vandaðan mat með áherslu á íslenskt hráefni í klassísku og rólegu andrúmslofti.

Teni er notalegur veitingastaður í verslunarkjarnanum við hliðina á sundlauginni á Blönduósi. Þar er boðið upp á heimilismat í hádeginu og ekta eþíópískar máltíðir á kvöldin. Auk þess eru pizzur, hamborgarar, samlokur og steikur á matseðlinum – veitingasalurinn býður upp á notalegt andrúmsloft með eþíópísku ívafi.
