Skip to product information
1 of 1

Prjónagleði

Prjónaarmbandið 2026 | Gildir inn á viðburði

Prjónaarmbandið 2026 | Gildir inn á viðburði

Regular price 6.000 ISK
Regular price Sale price 6.000 ISK
Sale Sold out
Taxes included.

Prjónaarmband Prjónagleðinnar

Prjónaarmbandið er helsta fjáröflunarleið Prjónagleðinnar. Með því að kaupa það styður þú  við Prjónagleðina og færð líka aðgang að alls konar skemmtilegheitum sem fylgja hátíðinni. Prjónaarmbandið er handgert og einstakt á hverju ári.

Armbandið veitir aðgang að opnunarkvöldi hátíðarinnar föstudagskvöldið 5. júní þar sem Kristín Brynja eigandi og hönnuður hjá Einrúm verður gestur kvöldsins ásamt Hildigunni og Hrafnhildi hjá Textílbarnum. Einnig er innifalinn í armabandinu aðgangur að kvöldvöku laugardagskvöldið 6. júní þar sem Stephen West kemur fram sem og að fjölda fyrirlestra sem haldnir verða á Prjónagleðinni um helgina.  

Athugið að vegna óviðráðanlegra aðstæðna verður Stephen West gestur kvöldvökunnar laugardagskvöldið 6. júní en ekki á opnunarkvöldi hátíðarinnar eins og áður var auglýst.

Prjónaarmbandið verður eingöngu til sölu á hér á heimasíðu hátíðarinnar.

Prjónaarmbandið verður afhent gegn kvittun í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar á Blönduósi frá klukkan 13, föstudaginn 5. júní og á Prjónagleðibásnum eftir að Garntorgið opnar klukkan 16 sama dag. 

View full details