1
/
of
2
Prjónagleði
Orkerað með nál - Kristjana Kona
Orkerað með nál - Kristjana Kona
Regular price
14.900 ISK
Regular price
Sale price
14.900 ISK
Unit price
/
per
Taxes included.
Laugardaginn 6. júní 2026
kl: 13.30 - 16.30
Staðsetning: Húnaskóli
Námskeiðslýsing:
Á námskeiðinu læra nemendur að orkera með nál. Útkoman er sú sama og þegar orkerað er með skyttu en aðferðin öðruvísi.
Orkeraðar blúndur eru t.d. notaðar í dúka, skartgripi og framan á peysufataermar.
Garn og orkeringarnál er innifalið í námskeiðinu.
Taka með:
Góða skapið og þolinmæðina. Allt efni er innifalið í námskeiðinu.
Nauðsynleg kunnátta:
Engin.
Tungumál: Íslenska, enska, spænska
Kennari: Kristjana Kona R. Traustadóttir
Kristjana hefur verið að fást við handavinnu af ýmsu tagi síðustu 15 árin. Hún kolféll fyrir textílheiminum þegar hún var í meistaranámi í Helsinki, en hún nam textílkennarann þar einn vetur. Það er henni mikilvægt að kunnátta í eldri og minna þekktri handavinnu glatist ekki. Þess vegna hefur hún lagt áherslu á að kenna t.d. orkeringu, vattarsaum og bandvefnað.
Couldn't load pickup availability
Share
