Prjónagleði
Ofin, sýnileg viðgerð í prjón - Sandra Karlsdóttir
Ofin, sýnileg viðgerð í prjón - Sandra Karlsdóttir
Sunnudagur 7. júní 2026
Kl: 9 - 12
Staðsetning: Húnaskóli
Námskeiðslýsing:
Á þessu námskeiði er vefnaður notaður í sýnilega viðgerð, á ensku kallað visible mending. Þessi aðferð hentar vel í viðgerð á prjónuðu efni og er, sem dæmi, frábær í viðgerðir á sokkum. Þú getur komið með prjóna flík sem þú vilt nýta námskeiðið í til að gera við, eða þú getur nýtt námskeiðið til að gera við prufubúta ef þú vilt æfa þig áður en þú gerir við flík.
Allt efni á staðnum nema það sem gera á við.
Taka með:
Prjónaflík til viðgerðar ef þú vilt nýta tímann til að byrja á viðgerð eða tilbúnar prjónaðar prufur til að vinna með, gott er að miða við 10x10 cm prufu.
Nauðsynleg kunnátta:
Engin
Tungumál: Íslenska
Kennari: Sandra Karlsdóttir
Sandra er tómstundafræðingur og ljósmyndari sem hefur undanfarin ár valið að hægja á — að sauma eða prjóna sjálf og viðhalda frekar en að kaupa nýtt. Þessi breyting á neyslu hefur haft í för mer sér aukna virðingu fyrir efni, tíma og sögunum sem búa í hverri flík. Söndru er hægt að finna á instagram undir nafninu @sondrugardur
Couldn't load pickup availability
Share
