Skip to product information
1 of 5

Prjónagleði

Þétt og falleg samskeyti bols og erma - mótun ermakúpu - Kristín Brynja Gunnarsdóttir

Þétt og falleg samskeyti bols og erma - mótun ermakúpu - Kristín Brynja Gunnarsdóttir

Regular price 16.000 ISK
Regular price Sale price 16.000 ISK
Sale Sold out
Taxes included.

Sunnudagur 7. júní 2026

kl: 9 - 12

Staðsetning: Húnaskóli

Námskeiðslýsing: 

Á þessu námskeiði vinnum við með upphaf á ermi sem er prjónuð beint út frá bolnum. Við förum yfir það hvernig best er að prjóna upp lykkjur í meðfram handvegi með hjálparþræði – sem tryggir þétt samskeyti milli bols og ermar – yfir í það að móta ermakúpulinn með stuttum umferðum (wrap-and-turn / german short rows), og að lokum úrtökur undir ermi. Áhersla er lögð á nákvæm og yfirveguð vinnubrögð þar sem samsetningin verður jöfn, þétt og tæknilega fín.

ÞÚ LÆRIR AÐ:

· Tryggja falleg skil á milli bols og ermar án gata og án þess að ermin gliðni frá bolnum.

· Nota hjálparband til að prjóna upp lykkjur í handvegi og þar með hafa betri stjórn á samskeytunum.

· Þétta samskeytin með því að draga til í hjálparbandinu.

· Móta ermakúpu með stuttum umferðum (wrap-and-turn eða german short rows).

· Færa upphaf umferðar fyrir samhverfa mótun.

· Prjóna í hring niður ermina með nákvæmum úrtökum.

Námskeiðið er ætlað prjónurum sem vilja fínpússa tæknina við gerð erma og læra aðferðir sem gefa faglega, gatalaus og stöðug samskeyti þegar ermar eru prjónaðar beint út frá bol. Þú þarft að vera vön/vanur að fylgja uppskrift, en þú þarft ekki að hafa unnið með stuttar umferðir áður – það lærir þú hér.

Taka með: 

Prjóna nr 3, 3,5 og 4, oddlausa nál og skæri

Nauðsynleg kunnátta:

Grundvallarprjónakunnátta nauðsynleg – fitja upp, slétt og brugðið, útaukning og úrtaka.

Tungumál: Íslenska, danska og enska

Kennari: Kristín Brynja Gunnarsdóttir

Bak við Einrúm studio stendur Kristín Brynja Gunnarsdóttir arkitekt. Með rætur á Íslandi og bækistöð í Danmörku sameinar hún íslenska prjónahefð og nútímalega prjónahönnun. Sem arkitekt og hönnuður vinnur Kristín með samspil á milli áferðar, léttleika og hlýju – sérstaklega í gegnum vinnu sína með einrúm-garnið, þar sem íslensk ull og silki mætast. Á námskeiðum leggur Kristín áherslu á efniviðinn og þau smáatriði sem gefa handverkinu sérstakt gildi. Lögð er áhersla á vandað handverk, ferlið og gleðina við að skapa varanlega flík frá grunni.

View full details