Hlaðborð, hlýja og freyðivín – föstudagskvöld á Prjónagleðinni!
Share
🍽️ Á föstudagskvöldi Prjónagleðinnar, þann 30. maí munu meistararnir á Hótel Blönduósi bjóða upp á glæsilegt hlaðborð í notalegu umhverfi á Sýslumanninum.
Á boðstólnum verður villisveppasúpa, fiskréttur og kjötréttur með meðlæti – og að máltíð lokinni er gestum boðið yfir í Krúttið, þar sem freyðivín og sætt bíður á milli 19:30 og 20:00. Hlaðborðið sjálft verður opið frá kl. 17:30 til 19:30.
Verð: 7.500 kr. 📞 Nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram í síma 699-1200 eða á blonduos@laugarbakki.is
Þau eru meira en tilbúin og ofurspennt að taka á móti ykkur🧡