Prjónagleði
Stjörnuhekl - Valgerður Guðrún Halldórsdóttir
Stjörnuhekl - Valgerður Guðrún Halldórsdóttir
Laugardaginn 6. júní 2026
kl: 13.30 - 16.30
Staðsetning: Húnaskóli
Námskeiðslýsing:
Stjörnuhekl myndar fallegt og áberandi mynstur sem hentar í margvísleg verkefni, svo sem tuskur, eyrnabönd, stúkur og fleira. Aðferðin hefur lengi verið notuð hér á landi, sérstaklega við gerð teppa úr lopa, og þekkja margir þessi hlýlegu teppi frá ömmum sínum og öfum.
Á þessu námskeiði verður kennd hefðbundin aðferð sem notuð er í gömlu íslensku teppunum. Þátttakendur gera prufu þar sem tæknin er æfð frá grunni. Kennd verður litaskipting til að mynda fallegar rendur og þátttakendur fá að velja á milli nokkurra mismunandi kanta til að klára verkefnið.
Við munum líka skoða saman sýnishorn úr mismunandi garni til dæmis mismargir þræðir af plötulopa, bómullargarn, silkiblanda og sjá hvernig aðferðin kemur út eyrnaböndum, tuskum og fleiri smærri verkefnum.
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist sjálfstæði í að nota stjörnuheklið í eigin verkefnum og geti lagað aðferðina að mismunandi garni, litum og notkun.
Taka með:
Heklunál nr 6 (eða hálfum stærri eða minni ef heklað er fast/laust) og alla vega tvo liti af plötulopa, léttlopa, Álafoss lopa eða öðru garn í svipuðum grófleika sem nægir í prufu (20 cm x 20 cm) og kant.
Nauðsynleg kunnátta:
Námskeiðið hentar bæði byrjendum með grunnþekkingu í hekli og þeim sem vilja bæta nýrri, hefðbundinni aðferð í verkfærakistuna sína.
Tungumál: Íslenska
Kennari: Valgerður Guðrún Halldórsdóttir
Valgerður er verkfræðingur að mennt en hefur starfað við kennslu og miðlun í rúman áratug. Hún byrjaði að hekla fyrir tuttugu árum til að stytta sér stundir í námi og hefur mikinn áhuga á hvers kyns handavinnu og handverkshefð. Á Instagram er hún með síðuna Völuskrín, þar sem hún deilir handverki sínu og hugmyndum.
Couldn't load pickup availability
Share
