Prjónagleði
Hannaðu þína eigin vettlinga - Nanna Einarsdóttir
Hannaðu þína eigin vettlinga - Nanna Einarsdóttir
Sunnudaginn 7. júní 2026
Kl: 9 - 12
Staðsetning: Húnaskóli
Námskeiðslýsing:
Í þessu námskeiði lærir þú að hanna vettlinga sem passa höndunum og hugmyndunum þínum fullkomlega, án þess að þurfa að reikna út eina einustu stærð.
Við byrjum á að fara yfir nokkur atriði sem er gott að hafa í huga við hönnunina, og setjum upp grunnuppskrift í Knittable út frá garnvali og stærð. Svo leiði ég ykkur í gegnum hvernig má teikna upp eigið mynstur, staðsetja það á vettlingnum og láta liti og form vinna saman.
Markmiðið er að skilja uppbygginguna vettlinga svo þú getir búið til ótal mismunandi útgáfur eftir þetta, hvort sem þú vilt gera einfalda leikskólavettlinga eða flóknari hannanir.
Taka með:
Garn í amk tveimur litum og prjónar sem hæfa garni. Engar kvaðir eru á hvaða garn þú velur, en því fínna sem garnið er, því fleiri lykkjum höfum við úr að moða fyrir hönnunina.
Nauðsynleg kunnátta:
Engin fyrri reynsla af hönnun nauðsynleg, bara grunnfærni í prjóni og löngun til að prófa eitthvað nýtt.
Tungumál: Íslenska
Kennari: Nanna Einarsdóttir
Nanna Einarsdóttir er stofnandi Knittable og þekkir því uppbyggingu og útreikninga prjónaflíka út og inn. Hún hefur hannað og gefið út nokkrar prjónauppskriftir og hefur sérstaka ánægju af skapandi prjóni, hvort sem það felst í litamynstri, tilraunum með snið eða að galdra fram einstaka flík úr alls konar afgangsgarni.
Couldn't load pickup availability
Share
