Skilmálar Prjónagleðinnar
Skilmálar vefverslunar Prjónagleðinnar
1. Almennt
Vefverslun Prjónagleðinnar er rekin af Húnabyggð (kt. 620269-2269), Húnabraut 5, 540 Blönduósi. Húnabyggð annast skipulag og framkvæmd hátíðarinnar sem opin bæjarhátíð án hagnaðarsjónarmiða. Hátíðin er hluti af menningar-, samfélags- og fræðsluhlutverki sveitarfélagsins samkvæmt sveitarstjórnarlögum.
2. Vöruframboð
Í vefversluninni er boðið upp á skráningu og kaup á námskeiðum, viðburðum og handverkstengdum vörum. Vöruframboð getur verið tímabundið og breytilegt.
3. Verð og greiðslur
Öll verð eru í ISK og innihalda virðisaukaskatt þar sem það á við. Greiðslur fara í gegnum greiðslugátt Straums greiðslumiðlunar hf. Viðskiptaskilmálar Straums gilda og má finna þá á:
https://www.straumur.is/stefnur-og-skilmalar
4. Afhending vöru
-
Námskeið: Skráning og staðfest kaup með tölvupósti.
-
Viðburðir: Skráning og staðfest kaup með tölvupósti.
-
Vörur: Afhent á hátíðarsvæði eða sendar ef það á við. Sendingarkostnaður reiknast við pöntun.
5. Skil og endurgreiðslur
a) Námskeið og viðburðir
Námskeið og viðburðir eru ekki endurgreiddir nema þeir falli niður af hálfu Prjónagleðinnar.
b) Vörur:
Vörum má skila innan 14 daga frá móttöku, ef þær eru ónotaðar og í upprunalegum umbúðum. Gallaðar vörur eru endurgreiddar að fullu.
c) Endurgreiðslur:
Endurgreiðslur eru unnar í gegnum greiðslugátt Straums og geta tekið allt að 7–10 virka daga.
6. Persónuvernd
Húnabyggð meðhöndlar allar upplýsingar í samræmi við lög um persónuvernd. Greiðsluupplýsingar eru meðhöndlaðar af Straumi og eru ekki geymdar hjá Húnabyggð.
7. Ábyrgð
Ef vara er gölluð eða rangt afgreidd, vinsamlegast hafðu samband innan 5 virkra daga.
8. Póstlisti
Netfang kaupanda skráist sjálfkrafa á póstlista Prjónagleðinnar.