{"product_id":"ad-opna-peysu-og-setja-isettar-ermar-sigurlaug-hauksdottir","title":"Að opna peysu og klippa í prjónles- Sigurlaug Hauksdóttir","description":"\u003ch2\u003e\u003cstrong\u003eLaugardaginn 6. júní 2026\u003c\/strong\u003e\u003c\/h2\u003e\n\u003ch2\u003e\u003cstrong\u003eKl: 9 - 12\u003c\/strong\u003e\u003c\/h2\u003e\n\u003ch2\u003e\u003cstrong\u003eStaðsetning: Húnaskóli\u003c\/strong\u003e\u003c\/h2\u003e\n\u003ch3\u003e\u003cstrong\u003eNámskeiðslýsing: \u003c\/strong\u003e\u003c\/h3\u003e\n\u003cp\u003eÁ námskeiðinu verður farið yfir hvaða hráefni hentar best þegar nota á þessa aðferð og hvað síður. Hvenær saumavél er nauðsynleg og hvenær ekki. Að hverju þarf að huga áður en flíkin er prjónuð. Uppklippilykkjur sléttar eða brugnar og hversu margar. Hvernig lykkjur eru teknar upp fyrir hnappalistum, lóðréttum sem og þvert á. Hvernig hnappagöt henta best hverju sinni. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEinnig verður farið stuttlega yfir ísettar ermar og hvernig klippt er upp fyrir þeim.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMælt er með að vera búin\/n að prjóna prufu sem hægt er að æfa sig á í síðari hluta námskeiðsins, eða koma með gamla peysu sem má klippa í. Æskilegast er að prufan sé úr lopa, eða annarri lítið unninni ull.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eUppskrift að litlum prjónuðum hólki verður send til þeirra sem skrá sig á námskeiðið. \u003c\/p\u003e\n\u003ch3\u003e\n\u003cstrong\u003eTaka með: \u003c\/strong\u003e\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\n\u003c\/h3\u003e\n\u003cp\u003ePrjónaðan hólk úr lopa eða gamalt prjónles (lopapeysu eða viðlíka) sem má klippa í og æfa sig á. Uppskriftin af hólknum verður send í tölvupósti til þátttakenda jafnóðum og þeir skrá sig.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ePrjóna og garn sem hentar hólkinum eða prjónlesinu, skæri og nálar til frágangs.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003eEinnig er upplagt að taka með flík sem verið er að vinna í eða á eftir að opna og fá ráðleggingar með áframhaldið.\u003c\/p\u003e\n\u003ch3\u003e\u003cstrong\u003eNauðsynleg kunnátta:\u003c\/strong\u003e\u003c\/h3\u003e\n\u003cp\u003eGrunnkunnátta í prjóni\u003c\/p\u003e\n\u003ch3\u003e\n\u003cstrong\u003eTungumál: \u003c\/strong\u003eÍslenska\u003c\/h3\u003e\n\u003ch3\u003e\n\u003cstrong\u003eKennari: \u003c\/strong\u003eSigurlaug Hauksdóttir\u003c\/h3\u003e\n\u003cp\u003e\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\u003cspan\u003eSillu hefur frá barnsaldri liðið best þegar hún hefur haft eitthvað á milli handanna, hvort sem það er bók eða hvers kyns handavinna, þá helst prjón. Henni finnast hljóðbækur og hlaðvörp besta uppfinning seinni ára, þá getur hún bæði „lesið“ og stundað handavinnu samtímis. \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eSilla hefur líka klippt í prjónles næstum jafnlengi og hún hefur prjónað, enda var hún svo heppin að eiga mömmu sem neitaði að gera hlutina fyrir hana vegna þess að hún gæti það sko alveg sjálf. Tvíbandaprjón og prjón sem gerir kröfur um nákvæmni og óvenjulegar eða nýjar lausnir er það sem helst vekur áhuga hennar. \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eHún hefur áður haldið vel sótt námskeið á Prjónagleðinni um frágang á peysum með mjög jákvæðum ummælum. Þá hefur hún einnig gefið út eigin prjónauppskriftir.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Prjónagleði","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53027436396811,"sku":null,"price":14900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/7582\/0299\/files\/opnapeysu.jpg?v=1775483566","url":"https:\/\/prjonagledi.is\/products\/ad-opna-peysu-og-setja-isettar-ermar-sigurlaug-hauksdottir","provider":"Prjónagleði","version":"1.0","type":"link"}